Dagarnir eru farnir að líða ansi hratt þrátt fyrir að maður geri ekki mikið allan daginn hérna. Afmælisdagurinn minn seinasta þriðjudag stendur þó allavega uppúr því sem komið er enda var þetta ógleymanleg ferð í Dolphin Cove þar sem við synntum með tveimur höfrungum. Sem betur fer er það þó sem ég man mest eftir en sá dagur byrjaði reyndar ekki of vel þar sem ég steyg ofaní einhverja tyggjóklessu um morguninn þegar ég var á leiðinni aftur inná herbergi úr gyminu. Enda þeir sem þekkja mig best vita að ég tjúllast alveg ef það kemur tyggjó við mig eða eitthvað af dótinu mínu. Hvað þá tyggjó fast undir skónum mínum. Ég hef meira að segja 2x hennt skóm útaf svoleiðis. En þar sem þetta voru frekar nýlegu íþróttaskónir mínir (og sá einu sem ég er með hérna) þá var ekki annað hægt en að reyna að ná þessu undan þeim svo ég gæti notað þá aftur. Úff ég fæ alveg ennþá gæsahúð að hugsa um það að það hafi verið klessa þarna föst undir.

En meira um höfrungana, þeir voru alveg yndislegir. Ferðin byrjaði rúmlega 10 um morguninn og keyrt var með okkur þvert yfir Jamaica þar sem Dolphin Cove er í St. Ann’s sýslu. Jamaica er skipt upp í nokkrar sýslur en við keyrðum í gegnum þrjár: St. James þar sem við erum, Trelawny og St. Ann’s. St. James sýslan er skýrð eftir elstu kirkjunni hér í Montego Bay, en það er kirkjan sem við stoppuðum í um daginn þegar var einhver útskrift leikskólakrakka í gangi. En já aksturinn til Dolphin Cove tók alveg 1 og hálfann tíma en farastjórinn gerði ferðina stutta þar sem hún sagði mikið frá landi og þjóð.

Þegar við komum til Dolphin Cove byrjuðum við á því að skoða okkur þarna um, hörfðum á höfrungana gera listir sínar fyrir aðra hópa, fórum í smá bátsferð í svona minibát, fengum að halda á stingray sem var búið að klippa halann af, hörfðum á fólk synda með hákörlum og snorkluðum og skoðuðum smáfiska og skötur. Síðan var komið að okkur að synda með höfrungunum. Við vorum það heppin að við vorum eina fólkið á þessum tíma sem ætlaði að synda með höfrungunum. Allir aðrir voru bara að fara í að horfa á eða klappa þeim. Svo það var farið með okkur tvö ein með tveimur höfrungum. Valur lét auðvitað guid-inn vita að ég ætti afmæli svo við fengum líka spes trítment. Þetta var alveg yndislegt, fengum að strjúka höfrungunum, láta þá synda með okkur og láta þá fljúga með okkur og henda okkur í kollhnís. Síðan tóku þeir líka lagið fyrir mig og sungu afmæissönginn. Það var ekki annað hægt en að vera bara brosandi útí eitt allan tímann, þetta var svo gaman. Það var tekið upp myndband af þessu og að sjálfsögðu keyptum við það eftir á til að eiga þessar minningar. Og hér er video-ið:

Núna seinustu 2 daga hefur ringt soldið mikið hérna, það hefur reyndar verið léttskýjað fyrir hádegið en svo kemur ausandi demba eftir hádegið. Við höfum þá bara legið undir sólhatti og haldið áfram að lesa og drekka kokteilana en við reyndar brugðum síðan útaf vananum í dag og tókum leigubíl í eldra verslunarmall-ið hérna sem kallast Blue Dimond. Mér finnst fyndið hvað þeir kalla “mall” hérna. Þetta eru ekki mall fyrir fimmaura. Heldur nokkrar búðir (sem margar hverjar selja það sama) staðsettar á sama stað. Þetta eru sem sagt mest þessar svokölluðu minjagripabúðir sem selja boli, glös, lyklakippur, styttur og útskorið dót og fleira. Það var auðvitað gaman að skoða þetta fyrstu dagana en þegar maður er dreginn í margar búðir sem allar virðast vera með það sama þá fær maður nóg. Það eru samt allir voða góðir hérna, kurteisir og almennilegir en vilja auðvitað selja sem mest. Enda eina almennilega tekjulind Jamaica eru ferðamenn.

Fyrir hádegið í dag þegar við lágum úti á sólbekk þá eignaðist Valur nýjan vin sem hann sagði að héti Kiddi krabbi. En það var lítill sandkrabbi sem var að búa til göng við hliðiná sólbekknum hans Vals. Hann var víst voða duglegur að bera sand úr göngunum og var alltaf að gæjast eitthvað á okkur.

Já dagarnir líða hratt hérna á þessari paradísar eyju sem kallast Jamaica. Það er reyndar búið að taka okkur nærri heila viku að fatta hvar við erum og auðvitað erum við að njóta þess í botn. Dagurinn hér einkennist af því að borða og liggja í leti í sólinni. Reyndar eru dagarnir hérna farnir að renna alveg saman í eitt þar sem við gerum nærri því það sama á hverjum degi. Það er vaknað svona um hálf níu leytið (reyndar reyni ég að vakna svona rúmlega 7 og fer í gymið að hjóla í svona 45 mínútur), farið í sturtu, farið í morgunmat og svo í sólbað. Síðan er það hádegismatur sirka um eitt leytið og svo aftur sólbað. Siðan er það kvöldmatur um átta leytið og svo bara hangið ýmist við sundlaugina þar sem eru stundum ágætis skemmtiatriði eða bara uppá herbergi þar sem er 32″ flatskjár og 120 sjónvarpsstöðvar. Já þetta er sannkallað letilíf hérna. Þetta hótel sem við erum á er alveg frábært, ég sem hélt þetta væri ekkert það spes úr því þetta átti að vera 3 stjörnu hótel, en þetta er alveg eins og 4 stjörnu. Við erum með stórt og rúmgott herbergi með tveimur queensize rúmum, svalir og þokkalegt klósett. En já þetta er all-inclusive hótel sem þýðir að allur matur og drykkir eru innifaldir. Það eru 4 veitingastaðir hérna: einn sem er hlaðborð en þar borðum við ofast enda ekki nauðsyn að panta borð, einn ítalskur, einn international og einn jamaican. Við erum reyndar bara búin að prófa þennan Jamakíska og var hann allavega mjög góður.

Við erum búin að fara í eina skoðunarferð sem af er komið og verða þær allavega 3 í viðbót sem við ætlum í. Þessi fyrsta var ferð inná land að býli þar sem ræktað eru ýmsir ávextir og vorum við að skoða trén og smakka ávextina. Einnig var okkur gefið að smakka hinar ýmsu gerðir af rommi en Jamaica er einmitt þekktust fyrir að flytja út romm. Það voru einar 15 tegundir sem við fengum að dreita á. En það var mjög skemmtilegt að fara svona útfyrir bæinn, við fengum einmitt leiðsögn á leiðinni um allt mögulegt af fararstjóranum. Það var líka mjög skemmtilegt. En það sem maður tekur mest eftir er hvað er rosaleg fátækt hérna. Fólk býr bara í hálfgerðum kofum en samt eru sum hús mjög fín inná milli. Þetta er mjög wird. Ég þarf einmitt að ná betri myndum af þessu en þegar bílinn keyrði framhjá náði ég bara frekar slæmum myndum. En það er já hægt að skoða myndir á facebook frá þessu. Ég læt samt fylgja hér myndband sem ég tók af litlum skólakrökkum sem sungu fyrir okkur:

Það er spurning hvenær maður lætur svo næst heyra í sér en netið er mjög dýrt hérna á hótelinu okkar, við erum reyndar með fartölvuna með okkur en 1 dagur á wireless kostar 15$ en annars er líka hægt að fara á netið í lobbýinu en þar kostar hálftíminn 10$. En þetta á jú að heita frí, ekki bara frí frá öllu heima heldur líka svo sem frí frá netinu, svo kannski blogga ég bara næst þegar við erum komin heim.

Vöknuðum kl 4 seinustu nótt til að baða okkur og gera klár fyrir ferðina okkar til London. Ferðin byrjaði þó á eins og hálfstíma seinkun eftir að við komum á flugvöllinn. Djöfull var það leiðinlegt þegar maður var svona þreyttur. Flugferðin út reyndist þó vera stutt enda dottaði maður alla leiðina þar sem við sváfum ekki í nema 2 tíma fyrir flugið.
Vorum síðan mætt á Best Western á Gattwick rúmlega eitt og fórum bara beinustu leið inní London til að eyða deginum þar. Það tók þó sinn tíma að komast þanngað og vorum auðvitað ekki búin að borða neinn hádegismat svo það fyrsta sem við vildum gera var að borða eitthvað. En eins og ég þekki okkur best þá eigum við alltaf erfitt með að finna stað sem við erum þokkalega sátt með svo við löbbuðum og löbbuðum og settumst ekki niður fyrr en kl var orðin hálf fimm. En við enduðum síðan á stað sem heitir Ping pong og er kínverskur staður með þokkalega japönsku ívafi. Við reyndar höfum borðað þarna áður, fórum þanngað árið 2006 þegar við eyddum viku í London eftir Global Gathering. En þetta er samt þokkalega flottur og góður staður og auðvitað verðið eftir því. Við fengum okkur einhvern menu fyrir tvo og enduðum síðan reyndar á því að kaupa tvo stóra bjóra (750ml) og þessi “létti” eftir miðdegisverður fékk að kosta okkur rúmlega 10þús. kr. Já jesús pétur.. við getum verið svolítið klikkuð stundum. Ætluðum síðan að fara í London Eye og skoða borgina en blöskraði rosalega verðið á þessari snúningsferð sem tekur reyndar um klukkutíma, en það átti að kosta 18 pund á manneskjuna, sem er tæplega 4 þús. kr. Í staðinn löbbuðum við bara áfram, fórum yfir brúnna og tókum síðan lestina til Notting Hill. Jóna og Big Ben Hefur alltaf langað að koma í það hverfi síðan maður sá myndina með Hugh Grant. En auðvitað fann maður ekkert í fljótu bragði þetta hús með risa bláu hurðinni en í staðinn fórum við inná lítið sætt kaffihús sem hét Kaffi Díana. Valur á Díönu kaffihúsinu Fengum okkur þar latte og enduðum síðan í Kingston park þar sem Diana bjó á sínum tíma. Þar er þessi rosalegi hallargarður, risastórt svæði þar sem fólk kemur og bara hangir í garðinum og horfir á fuglana. Sáum þar einmitt rosalega marga svani, eina fuglafjölskyldu sem var rosalega stolt með ungana sína. Tók einmitt af þeim þetta skemmtilega myndband.

Við vorum reyndar alveg búin á því þegar við vorum búin að labba umhverfis tjörnina þarna. Svo við tókum lestina bara beint aftur á Gattwick og fórum uppá hótel og fengum okkur smá kvöldsnarl og svo var bara farið beint í bólið, enda langur dagur framundan í flugvél. Athugið að það er hægt að skoða fleiri myndir á facebook síðunni minni :)

Já sumarið á eftir að verða ansi spennandi fyrir mig og Val þar sem við ætlum að leggja land undir fót og kanna strendur Jamaica. En meira um það svo sem síðar, þar sem ég ætlaði aðeins að segja frá því sem ég er búin að vera að gera. :)
Það er náttúrulega alltaf svo langt á milli blogga að maður þarf að koma síðan öllu fyrir í einum stuttum póst til að láta vita að maður sé enn á lífi.

Ég gerði mér nú lítið fyrir og setti eitt íslandsmet um daginn. En gamla tók þátt í íslandsmeistarmóti garpa á Siglufirði í endaðann apríl og kom heim með 6 gull, 1 silfur og eitt brons og eitt íslandsmet í 200m bringusundi kvenna. Reyndar í aldursflokknum 30-35 ára, þrátt fyrir að vera ekki kominn á þann aldur enn, það var bara miðað við helvítis árið sko. En ég var rosa dugleg, bætti metið um heilar 8 sekúndur svo ég var mjög sátt við þetta allt saman. Hún Kristín sem er að æfa með mér í Breiðabliki var líka svo snjöll að vera með cameruna með sér að hún tók upp sundið mitt. Er að spá í að leyfa því að flakka hérna með:

En já svo meira að frétta: ég seldi íbúðina mína á Hverfisgötunni núna um daginn. Ansi sátt með það, enda ekki margar íbúðir að seljast í bænum eins og er. Þannig núna er stefnan tekin á að kaupa í haust eða strax á næsta ári eitthvað stærra. Get reyndar varla beðið eftir að komast í stærra, orðin frekar þreytt á þessu helluborði sem við erum með og enginn bakarofn. Þetta er allavega ekki lengur boðlegt fyrir kéllingu komna á fertugsaldurinn eftir rúma viku! :)

En jæja bið að heilsa!

Helvíti er ég léleg í þessu að halda úti blogg. Kominn vel rúmlega mánuður síðan ég nennti að skrifa eitthvað seinast. Og síðan seinast hefur nú ansi margt gerst. Örugglega efni í allavega 3 blogg en ég ætla að hnoða því saman öllu í eitt og láta það nægja :)

Ég fór í svona sýrustigsmælingu uppúr miðjum febrúar þar sem slöngu var troðið frá nefinu og ofaní maga og þar mælt eitthvað. Ég var með þetta á mér í heilan sólarhring og átti að reyna að borða sem “eðlilegast” meðan ég var með hana.

Meira +

Við Valur fórum til foreldra hans núna seinasta fimmtudag og elduðum fyrir þau alveg svakalega góðan þríréttaðan kvöldverð. Ég var að hugsa um að vera ekki með neitt raus núna heldur bara gefa ykkur uppskriftirnar.
Í forréttinn vorum við með rosalega góðan rækjurétt sem við lærðum af honum Carlos, kærasta systur minnar. Það sem maður þarf er:

Meira +

Já í gær gerðum við okkur glaðan dag í vinnunni, eða réttara sagt eftir vinnu. Fengum til okkar lærðan vínþjón sem vinnur hjá Glóbus sem er einn stærsti innflytjandi á víni hér á Íslandi, og var með vínsmökkun fyrir okkur. Síðan var brunað beint í Sundhöllina og setið aðeins í pottunum. Og þar á eftir var síðan þorrablótið sjálft heima hjá honum Reyni starfsfélaga mínum, hjólreiðagarpinum mikla.

Meira +

Til þess að vera aktífari hérna á blogginu ákvað ég gefa ykkur loksins uppskriftina af örbylgjuofnskökunni hennar ömmu heitin. Ég veit reyndar ekki hvaðan þessi uppskrift er komin upprunalega en mamma fann hana í gömlu uppskriftarbókinni hennar ömmu. Ég man reyndar eftir því að við systir mín bökuðum stundum þessa köku þegar örbylgjan var nýjasta græjan á heimilinu og átum hana alla sjálfar með nýþeyttum rjóma. Þetta er samt alveg þokkalega stór uppskrift, ætti að duga sem eftirréttur fyrir 5-6 manns.

Meira +

Jæja ég að blogga í annað sinn á stuttum tíma! :) En eins og ég sagði þá hef ég nú oft ekkert gáfulegt að segja þannig hérna er uppskriftin af því sem ég eldaði í gær, sem var reyndar vibbalega gott. Ég tók uppskriftina úr bókinni Eldað af líf og sál eftir hana Rósu Guðbjarts en aðlagaði hana auðvitað soldið til. Í upprunalegu uppskriftinni átti sem sagt að nota lambalundir en þar sem ég átti þær ekki til notaði ég bara kjúklingabringur og risarækjur. Ég hef reyndar eldað nokkuð uppúr þessari bók og í flestum tilfellum þá stendur að uppskriftin sé fyrir 4 en mér finnst það nú algjört rugl, þetta oft réttdugar fyrir okkur Val. Við reyndar notum oftast ekki mikið meðlæti nema ég með salat. En samt í þessu tilfelli bjuggum við til fyllta tómata og sætar kartöflur með.

Meira +

Mikið hrikalega er ódugleg við það að blogga. Ég hugsa reyndar oft um það um hvað ég ætla að blogga og hvað væri nú skemmtilegt að segja frá en einhvernveginn kem ég því síðan nær aldrei í verk. Þetta er meira að segja fyrsta færslan mín á árinu 2010 en hann Stebbi minn opnaði sitt blogg núna um daginn (það var meira að segja 16. janúar s.l.) og síðan hann opnaði bloggsíðuna sína er hann búinn að pósta 11 bloggum! Verð að viðurkenna að það er komið smá keppnisskap í mig útaf því og hef ég því heitið sjálfri mér því að nú ætla ég að verða duglegri við þetta. Þó ekki væri nema bara til að pósta uppskriftum ef ég hef ekkert gáfulegra að segja. Ég er nefnilega ansi oft að reyna eitthvað nýtt fyrir mér í matargerðinni og ansi oft eru uppskriftirnar mjög góðar og þess virði fyrir aðra að prufa líka.

Meira +









 
 

Me elshewhere on the internet


Contact me

I want to hear from you!
Have a question for me? Or just want to say hi?

Drop me a line +

 
 
?>